Ok ég er virkilega farin að þrá vorið og sumarið, er orðin frekar þreytt á þessum snjó og kulda !! Ég skil fólk mjög vel fyrir að skella sér til sólarlanda um þetta leiti til að komast í burt frá þessu kuldaskeri !!! Þetta land getur nú oft verið yndislegt en núna er ég ekkert mjög spennt fyrir því. Væri til í að komast aðeins í burtu þó það væri ekki bara eina helgi til London ? vill ekki einhver bjóða mér ??? he he he
- Samfés er næstu helgi og þá verður nóg að gera í vinnunni, hlakka til þegar Samfés er búið og þá eru allir stórviðburðir búnir í bili
Svo er ekki nema 3 vikur í páskana og þá verður maður með nefið oní lærdómsbókunum en reynir að kíkja í sveitina líka
Alltaf svo gott að vera í sveitinni
Bara vika þangað til ég þarf að flytja á vellina í 2 vikur, það verður mjög fínt, stutt í vinnu og gott næði til að læra enda svo stutt í prófin
Var einmitt að spá í næstu haust og taka þá færri áfanga og vinna meira
Manni vantar alltaf pening, ekki satt ?
njótið snjósins !!
Fjóla skrifaði
Fjóla skrifaði
Fjóla skrifaði