Er það bara ég eða er ekkert nema vondar fréttir í blöðum og sjónvarpi……. Mér finnst í hvert skipti sem ég kíki á mbl.is að þá er ekki verið að tala um neitt annað en eitthvað slæmt. 9 látnir í Finlandi eftir skotárás, íslensk kona fannst látin í dóminíska lýðveldinu, gengið súper hátt, börn lenda í ofbeldi heima hjá sér……….. Þetta er allt eitthvað svona, er heimurinn gjörsamlega að fara til fjandans ?
Þið hljótið að geta sagt mér eitthvað skemmtilegt ?
september 24, 2008 klukkan 3:11 pm
Ég get látið þig fara að hlægja:) Það var HELL að komast heim frá þér í gær! Ég hélt ég myndi lenda í árekstri þegar Guðný tekur allt í einu u-beygju og ég á eftir hehe:P Svo var kreisí rigning og vindur og ég hélt bara að ég yrði ekki eldri…
september 24, 2008 klukkan 6:22 pm
Fegin að þið komumst heim heilar á húfi
Verð að teikna fyrir ykkur leiðbeiningar heim til mín svo þið ratið nú til mín og heim aftur
september 26, 2008 klukkan 10:09 am
fullt af góðum fréttum… saumó á sunnudaginn
ég er komin með bílpróf (veit reyndar ekki hvort að það séu góðar fréttir fyrir aðra en mig :p)