Merkilegt, þegar ég var lítil varð ég frekar mikill dramadrottning ef mamma og pabbi minntust eitthvað á þá hugmynd um að flytja kannski í Hafnarfjörðin. Það var bara hræðileg tilhugsun, maður var náttúrlega gelgja og himin og jörð hefðu örugglega farist ef maður hefði flutt frá vinum sínum
Svo varð ég eldri og þroskaðri (eða ég held því alla vegana fram) og Hafnafjörður leit ekki neitt svo illa út lengur
Þar sem allt er í kreppu og ég ákvað að í framtíðinni vil ég vera í umönnunarstarfi sem er nota bene ekki vel borguð. En peningar eru ekki allt og mestu skiptir að vera hamingjusamur…. en nú er ég algjör farin að tala um allt annað. Ég ætlaði nú bara að segja að ég er að fara að flytja á vellina í LITLA en sæta íbúð
ég ákvað að taka stúdentaíbúð (ódýrastar) á leigu og það verður mjög fínt. Stutt í flesta þjónustu og heim til stóra bróður
Mig langaði ekki neitt í stúdentaíbúðirnar í RVK og þar sem vellirnir eru nú rétt hjá Garðabænum og vinnunni minni þá var þetta tilvalið
Talandi um vinnu þá er þvílíkt stuð hjá mér þar og mínum dygga aðstoðarmanni Axel. Verð bara að segja að ég held að þetta verði nokkuð skemmtilegur vetur hjá okkur
Skemmtilegir unglingar og skemmtilegt starfsfólk, getur maður beðið um meira
Fór niðrí bæ í gær að taka og fylgdist með mótökunni og það var bara mjög gaman. Fór með Unni vinkonu og við kíktum aðeins á kaffihús. Þvílíkur fjöldi af fólki, nokkuð flott að sjá hversu margir mættu.
enda á nokkrum myndum frá Noregi…..







ágúst 28, 2008 klukkan 4:37 pm
afhverju sagðiru ekki að ég væri tíkin þín líka?
ágúst 29, 2008 klukkan 8:52 am
af því ég lýt meira á þig sem þræl en vildi ekki alveg skrifa það……….
ágúst 30, 2008 klukkan 1:27 pm
JEI!!! Ohh hvað ég er ánægð að fá þig nær mér
Nú verður sko skroppið til þín elskan mín!! Get ekki beðið
ágúst 31, 2008 klukkan 11:10 am
Alltaf velkomin Kristín mín
september 2, 2008 klukkan 7:54 pm
þú verður nú að bjóða okkur bráðum í heimsókn, held við villumst ekki í þetta skiptið