Er að fara út eftir viku og kem aftur 5 ágúst, sem þýðir að sumarið er að verða búið !!!!! Tíminn líður alltof hratt að mínu mati, ég ætla mér alltaf að gera helling af hlutum en svo er allt í einu enginn tími.
Fór í sveitina um helgina og naut góða veðrisins þar
Tinna, Hildur og Maz komu í heimsókn á laugardeginum og ég sýndi þeim aðeins sveitina og svo voru þau í mat, held að þeim hafi alveg fundist það fínt
Áður en þau komu þá fór ég ásamt Kristínu mágkonu, mömmu og Agnesi frænku á Flúðir því Bylgjan var þar með einhverja tónleika. Ég hefði geta setið þar miklu lengur og fylgst með fólkinu, það var ansi skrautlegt fólk þarna inn á milli
Ég og Kristín skemmtum okkur konunglega þarna. Mér finnst mjög gaman að fylgjast með fólki, þá er ég ekki að meina að gera grín af þeim, bara fylgjast með þeim og sjá hvernig fólk hagar sér
Næsta helgi er ættarmót og er ég að vona að það verði nú ekki rigning þar sem ég ekki alveg að nenna að tjalda í rigningu :I nenni ekki að standa í því að allt sé blautt og svona…….
Erla og Bjarki eignuðst prinsessu 14 júlí og hún er svo sæt. Ég segi bara innilega til hamingju elsku Erla og Bjarki
Eigið góða viku……..
júlí 23, 2008 klukkan 1:53 am
Nei Fjóla!!!!! Það er BANNAÐ að minna mig á sumarið sé að verða BÚIÐ
Spurning hvort maður flytji ekki bara einhvert þar sem ALLTAF er sumar og sól
hmmmm…. viltu koma með
??
júlí 23, 2008 klukkan 9:22 am
he he, væri ekki slæmt að gera það. Ef ég kem ekki með þá kem ég alla vegana í heimsókn he he
júlí 23, 2008 klukkan 11:59 pm
Takk fyrir hamingjuóskrinar:D
en er samt alveg sammála þér að sumarið er búið að vera fljótt að líða, en ég er ánægð með það:D:D
pff sumarið er ekkert að verða búið, hættu þessu bulli!
júlí 24, 2008 klukkan 4:42 pm
Óóóó NEI Fjóla mín… sumarið er rétt að byrja hjá þér
Veðrið hérna er alveg klikkað og er spáin sko ekkert að fara að versna 
Annars bara 5 dagar í þig skvís og mig er farið að hlakka svo til
Heyri í þér soon..
Sólarkveðja frá Oslo