sumarið að verða búið !!!!!!

júlí 22, 2008

Er að fara út eftir viku og kem aftur 5 ágúst, sem þýðir að sumarið er að verða búið !!!!!  Tíminn líður alltof hratt að mínu mati, ég ætla mér alltaf að gera helling af hlutum en svo er allt í einu enginn tími.
Fór í sveitina um helgina og naut góða veðrisins þar :)  Tinna, Hildur og Maz komu í heimsókn á laugardeginum og ég sýndi þeim aðeins sveitina og svo voru þau í mat, held að þeim hafi alveg fundist það fínt ;)  Áður en þau komu þá fór ég ásamt Kristínu mágkonu, mömmu og Agnesi frænku á Flúðir því Bylgjan var þar með einhverja tónleika. Ég hefði geta setið þar miklu lengur og fylgst með fólkinu, það var ansi skrautlegt fólk þarna inn á milli ;)  Ég og Kristín skemmtum okkur konunglega þarna. Mér finnst mjög gaman að fylgjast með fólki, þá er ég ekki að meina að gera grín af þeim, bara fylgjast með þeim og sjá hvernig fólk hagar sér ;)  

Næsta helgi er ættarmót og er ég að vona að það verði nú ekki rigning þar sem ég ekki alveg að nenna að tjalda í rigningu :I nenni ekki að standa í því að allt sé blautt og svona…….

Erla og Bjarki eignuðst prinsessu 14 júlí og hún er svo sæt. Ég segi bara innilega til hamingju elsku Erla og Bjarki :D  

Eigið góða viku……..