Mér finnst rigningin góð……

Mér finnst bein rigning æðisleg en um leið og það er komin vindur þá er ekkert svo gaman ;)   En það er nauðsynlegt að hafa rigningardaga inn á milli :)

Fór í sveitina í föstudagskvöldið og fór aftur heim á laugardagskvöldið. Kom við hjá Ástu á heimleiðinni og þegar ég fór þaðan þá var klukkan að verða 1.  Ég var nú frekar mikið smeyk þegar ég keyrði kambana, það var þvílík rigning og mjög mikil þoka. Við erum að tala um að ég sá ekkert nema hvítt, ég hafði ekki hugmynd um hvenær kambanir byrjuðu og enduðu.  En komst heim heil á höldnu ;)    Ég og Ásta töluðum auðvita um allt á milli himins og jarðar og þar á meðal fórum við að tala um nöfn, hvað sumir foreldrar gera börnum sínum með því að skíra þau fáranlegum nöfnum.   Við kíktum á mannanafnanefnd og sáum þar að þú getur skírt strákinn þinn “Hilaríus skíði” einnig gætiru skírt hann “skúta”…… svona án gríns, hver gerir barninu sínu þetta ???

Fór á Mamma mia í gær, það var smá fjölskylduferð og þessi mynd er æði. Það var fullur salur og þvílíkt stemming, fólk var farið að klappa með lögunum í endann. Ég mæli alla vegana með myndinni ;) Meryl Streep og Colin Firth eru frábær í myndinni og  reyndar allir.  Það var reyndar frekar skrýtið að sjá sjálfan James Bond syngja ha ha

Ekki nema 2 vikur í Noreg og það verður yndislegt að komast aðeins út. Hlakka til :D

Eigið góða viku ;)

4 svör to “Mér finnst rigningin góð……”

  1. johanna segir:

    hahahaahha ja rett er það þessi nöfn….òtrulegt en satt ef thu att leið um à stöðvarfjörð þa getur þu bankað upp hja henni skùtu….àn grins …:) bið að heilsa henni ;)

    kv
    Jòhanna

  2. Fjóla segir:

    En samkvæmt mannanafnanefnd þá er skúta karlmannsnafn !!!

  3. johanna segir:

    ekki fyrir austan allavega ….er stelpa þar sem heitir skùta

  4. Unnur segir:

    hhmmmm…Skúta…gaeti vanist, allavega betra heldur en Ljótur Ljósálfur :D
    Miss jú alot í 35 stiga hita…híhí :D

Skildu eftir svar