Þegar ég var yngri var ég mjög óheppin, datt á hausinn, labbaði á staura, gerði mig óvart að fífli og svo framvegis. Þar sem maður er nú orðin eldri og þroskaðri þá var ég nú að vona að ég væri laus við þessa óheppni mína. En ég var vel minnt á hana í seinustu viku, á mánudeginum datt ég með löppina í holu !!! Það var frekar vont og fékk ég falleg sár sem gefa ör. Á föstudeginum mæti ég svo hress en þreytt með Hörpu í Hress klukkan korter í 6 til að fara að æfa. Klukkan hálf 7 er ég á leiðinni á slysó !!!!!!!! Vissi alltaf að íþróttir eru stórhættulegar
Ég sem sagt missteig mig svona illa að ég tognaði og gerði löppina mína tvöfalda og mátti ekki keyra bílinn minn né stíga í löppina um seinustu helgi. Þar fór helgarplanið og ég endaði upp í sveit og sat mest alla helgina á rassinum !!! Gaman það
En ég er öll að koma til og maður tekur auðvita bara pollýönnu á svona
Þar sem ég kemst ekki í Hress þá reyni ég að fara í sund á morgnana og það er bara fyndið. Þar eru eldri menn samankomnir og rífast um pólitík og olíuverð, bara skrautlegt
Magga frænka var níræð í gær, og alltaf jafn hress. Auðvita var haldin veisla enda merkilegt að ná því að verða 90 ára. Ég þekki pabbaætt voða lítið og var það því forvitanlegt að vera þarna í veislunni og sjá frændfólkið sitt. Hitti meira segja konu sem sat við hliðina á mér og Kristínu í flugvélinni þegar við fórum til New York í fyrra og ég komst að því í gær að þetta er frænka mín !!!!! bara fyndið
Ferðahelgi framundan og ég ætla að vera í rólegheitum heima
Barnaafmæli hjá Viktoríu á sunnudaginn og maður verður auðvita að láta sjá sig þar og ég er heldur ekki alveg að nenna að vera í umferðinni á sunnudaginn.
Þeir sem mig þekkja vita að ég er þvílík ísmanneskja, ég gæti lifað á ís. Ég varð í þvílíkum vonbrigðum með nýju ísbúðina í Garðbæ. Hann var dýr og bara ekki góður, keyri frekar eitthvað lengra og kaupi mér ís þegar mér langar í ís. Og bara svo þið vitið þá er besti ísinn á Flúðum
Góða helgi

júlí 3, 2008 klukkan 11:59 pm
eins og ég segi þá er enþá til stór rúlla af bóluplasti niðri vinnu sem ég get látið þig fá….
farðu varlega stelpa….
júlí 4, 2008 klukkan 4:40 pm
Æ greyið mitt :S Láttu þér nú batna í fætinum.
Góða helgi
júlí 5, 2008 klukkan 10:23 pm
Þú ert svo mikill klaufi! haha:) kjánaprik:P
En það vita það aaaaaaaaallir að besti ísinn er í erluís í skeifunni:)
júlí 5, 2008 klukkan 10:43 pm
Láttu þér batna fljótt… sakna þín alveg hrikalega í ræktinni, er sko ekkert dugleg að mæta núna.
júlí 6, 2008 klukkan 6:40 pm
úppps…tú ert nú meiri klaufabárdurinn ;D
Vona ad fóturinn lagist fljótt.
júlí 12, 2008 klukkan 11:29 am
Besti ísinn er hjá Brynju á Akureyri! … en ég hef reyndar ekki smakkað ísinn á Flúðum ;o)
júlí 12, 2008 klukkan 10:16 pm
Bara að tékka á þér! Var að hugsa til þín!