Sól sól skín á mig

júní 26, 2008

Ég er alveg mjög sátt við það að sólin er farin að skína og það er orðið ágætlega heitt úti :)   kvarta alla vegana ekki. Vona bara að veðrið verði svona um helgina því ég er að spá í að skella mér í sveitina og njóta góða veðrisins þar ;) og auðvita fá sér ís ;)

Það styttist óðum í Noregsferðina og hlakkar mér mjög mikið til. Verður frábært að heimsækja litlu fjölskylduna í Noregi (sem fer stækkandi ;) ).  langar reyndar frekar mikið til London, Hildur vinkona var að koma frá London og ég var bara öfundsjúk hehe ;)   en hvað veit maður nema maður skelli sér í haust eða fyrir jólinn :D    London einu sinni á ári er næstum nauðsynlegt :D

Horfði á allra vörum um daginn og mér fannst þetta snilldar framlag.  safnaðist slatti af pening en samt ekki nóg og auðvita lagði maður sitt af mörkunum ;)    Mér finnst brjálað fyndið að það er verið að eyða milljónir í einhvern dana sem á að koma og ná einhverjum ísbjörn og það auðvita mistekst og nokkrar milljónir farnar í vaskinn. Hefði ekki verið sniðugara að nota þessa peninga í eitthvað gagnlegt.  Talandi um ísbjörn, einhver annar orðin leiður á þessu ísbjarnar tali í fjölmiðlum ????

Vona að þið eigið góða helgi og mæli með því að þið kíkið á myndböndin hér fyrir neðan, þau fá ykkur til að brosa :)