ég er enn hér……

Nei ég er ekki alveg hætt að blogga er einhverja hluta vegna bara ekki búin að finna tímann í að gera það……

Ég fór til Svíþjóðar 1 júní með dropanum sem er samtök fyrir sykursjúk börn og unglinga. Ég var farastjóri ásamt 4 öðrum og svo var læknir með okkur og hjúkrunarfræðingur.  Við flugum til Kaupmannahafnar og keyrðum þaðan til Fiskebackslag í Svíþjóð. Gistum þar eina nótt og fórum svo í skútu og vorum á henni í 3 nætur og sigldum um.  Það var mjög gaman vera á skútunni enda var veðrið geðveikt allan tímann. Við fórum svo til Gautaborgar og vorum þar á hóteli í 2 nætur. Fórum í smá verslunarleiðangur og í Liseberg þar sem ég fór 6 sinnum í rússíbanana :)   Brjálað stuð ;)    Þessi ferð var frábær og mjög skemmtileg, allan tímann var sól og hiti og auðvita tókst manni að brenna…..  Unglingarnir voru á aldrinum 14 – 18 ára og var yndisleg og hinir farastjórarnir voru fínir og skemmtilegir, þannig þessi ferð var algjör snilld !!! 

Fór á Sex and the City myndina og hún var æði fannst mér. ALveg mynd sem ég get hugsað mér að eiga til að horfa á aftur ;)   algjör stelpumynd.  En hvar er minn Mr. Big ????

Christopher Noth as Mr. Big and Sarah Jessica Parker as Carrie Bradshaw in New Line Cinema's Sex and the City

Helgin framundan og ég hlakka til að sofa út á laugardaginn ;)   langar í sveitina en fer frekar helgina eftir þessa. Alltof langt síðan ég fór í sveitina og langar ekkert smá mikið að fara að koma mér þangað enda besta sveitin í heiminum ;)    

Njótið dagsins og góða veðrisins !!!
 

 

2 svör to “ég er enn hér……”

  1. Unnur segir:

    jeiii loksins blogg!!! :)
    hahaha dýrka rússíbana, gaeti farid 10 sinnum í röd ef ég fengi ekki alltaf hausverk :/
    Frábaert ad ferdin tókst svona vel.
    Stórt knús!!!

  2. Thelma segir:

    gaman að ferðin hafi tekist svona vel…
    en ég er sammála með sex and the city… ætla pottþétt að kaupa hana og eiga á dvd… verðum að horfa á hana aftur einhverntíman og þá allar saman :)
    pant vera Samantha ;) hehehhehe djóóók!

Skildu eftir svar