Loksins sumar eða svona næstum því……

Vaknaði klukkan 4 í nótt við Máva sem voru út í garði !!!  þvílíkur hávaði……… skárra væri ef þetta hefði verið einhver fuglasöngur en nei þetta var eitthvað helv…… garg !!!!!!  Mín varð frekar pirruð.  Svo náði birtan að komast inn um svefnherbergisgluggan sem var ekki til að bæta það hehe hljómar þetta eitthvað eins og ég hafi eitthvað verið pirruð í nótt he he !! náði á endanum að sofna aftur og fór ekki í leikfimi í morgun klukkan 6……  ég og Harpa ákváðum að vera góðar við okkur þennan mánudagsmorgun og sofa lengur ;)   Enda mætti ég hress og kát i vinnuna klukkan 10 :D

Loksins er farið að hlýna en ég er gráðug og vil meiri sól, sérstaklega eftir að vera búin að tala við írisi.  Það er víst bara bongó bliða í Noregi, íris kemur bara með hitann þegar hún kemur í maí ;)    Golan er lúmskt köld, ég hélt ég mundi frjósa úr kulda seinasta miðvikudag þegar ég var úti frá 16 – 19, þá var mjög kalt út ¨!!! það er reyndar bara apríl enþá, maður ætti kannski að bíða með að kvarta þangað til maí er komin ;)

Fer í 2 próf í maí, fyrsta er 9 maí og seinna 13 maí og þá er þessi önn búin :) ma og pa fara svo til amsterdam 14 maí og verða í 5 nætur. Það er bara lúxus á þeim gömlu!! ég hefði ekkert á móti því að stinga af eftir prófin og helst í svona 2 – 3 vikur ;) en ég verð víst að bíða þangað til í júní.  Í júni fer ég í smá vinnu til Svíþjóðar í viku, ásamt hóp af unglingum og öðru starfsfólki :) og svo um verslunarmannahelgina er það vika í Noregi.  Íris búin að lofa góðu veðri svo ég get ekki beðið eftir að kíkja í heimsókn :D

Smá mont hérna af litlu frænku henni Alexöndru.  Fór að horfa hana keppa í fimleikum á sumardaginn fyrsta og haldið ekki hún hafi verið meistari mótsins !!!  Ég var ekkert smá montin af skvísunni, nokkuð viss um að hún fái þetta allt úr föðurættinni ha ha ha ha

Eigið góðan dag…… :D

Ég, Hildur og Hjördís……. einhver litamunur ?????

 

 

6 svör to “Loksins sumar eða svona næstum því……”

  1. Erla Perla segir:

    Þú ættir að prufa að sitja úti á palli hjá mér þar er sko hlýtt og gott:) engin vindur og bara næs:D Enda sat ég þar úti í næstum allan gærdag híhí

  2. Fjóla segir:

    Þegar prófin eru búin þá verð ég fastagestur ;) he he

  3. Íris segir:

    Nei… þið eruð allar svo sætar ;)

    Vildi annars bara kasta kveðju á þig :)

    Kv. Íris

  4. unnur segir:

    Heyrdu nú mig, á ekkert ad fara blogga, tarf nú ad fara fá nýjar fréttir:)
    Stórt knús:)

  5. Erla Bumba segir:

    Jæja Fjóla á ekki að blogga? Þar sem ég verð heima í sumar finnst mér þú skuldbundin að blogga reglulega;)

  6. Tinna segir:

    Hva? Bara hætt að blogga…?

Skildu eftir svar