Vaknaði klukkan 4 í nótt við Máva sem voru út í garði !!! þvílíkur hávaði……… skárra væri ef þetta hefði verið einhver fuglasöngur en nei þetta var eitthvað helv…… garg !!!!!! Mín varð frekar pirruð. Svo náði birtan að komast inn um svefnherbergisgluggan sem var ekki til að bæta það hehe hljómar þetta eitthvað eins og ég hafi eitthvað verið pirruð í nótt he he !! náði á endanum að sofna aftur og fór ekki í leikfimi í morgun klukkan 6…… ég og Harpa ákváðum að vera góðar við okkur þennan mánudagsmorgun og sofa lengur
Enda mætti ég hress og kát i vinnuna klukkan 10
Loksins er farið að hlýna en ég er gráðug og vil meiri sól, sérstaklega eftir að vera búin að tala við írisi. Það er víst bara bongó bliða í Noregi, íris kemur bara með hitann þegar hún kemur í maí
Golan er lúmskt köld, ég hélt ég mundi frjósa úr kulda seinasta miðvikudag þegar ég var úti frá 16 – 19, þá var mjög kalt út ¨!!! það er reyndar bara apríl enþá, maður ætti kannski að bíða með að kvarta þangað til maí er komin
Fer í 2 próf í maí, fyrsta er 9 maí og seinna 13 maí og þá er þessi önn búin
ma og pa fara svo til amsterdam 14 maí og verða í 5 nætur. Það er bara lúxus á þeim gömlu!! ég hefði ekkert á móti því að stinga af eftir prófin og helst í svona 2 – 3 vikur
en ég verð víst að bíða þangað til í júní. Í júni fer ég í smá vinnu til Svíþjóðar í viku, ásamt hóp af unglingum og öðru starfsfólki
og svo um verslunarmannahelgina er það vika í Noregi. Íris búin að lofa góðu veðri svo ég get ekki beðið eftir að kíkja í heimsókn
Smá mont hérna af litlu frænku henni Alexöndru. Fór að horfa hana keppa í fimleikum á sumardaginn fyrsta og haldið ekki hún hafi verið meistari mótsins !!! Ég var ekkert smá montin af skvísunni, nokkuð viss um að hún fái þetta allt úr föðurættinni ha ha ha ha
Eigið góðan dag……
Ég, Hildur og Hjördís……. einhver litamunur ?????

Fjóla skrifaði