langar svo….

  • Íris var svo skemmtileg að freista mín til að koma til sín helgina 11 – 13 apríl og mig langar svo….  farið hjá icelandair er á um 40000 og ég er ekki alveg að tíma því fyrir eina helgi.                                                                            …….
  • Páskarnir búnir og þeir voru rólegir.  Skrapp í sveitina og var þar í eina nótt, alltaf fínt að komast í sveitina en getur verið þröngt á þingi þegar allir koma en það sleppur ;)  Svo eru prófin að byrja og ég er búin 13 maí og ég get ekki beðið, verður fínt að vera bara að vinna og þurfa ekki að hafa áhyggjur af einhverjum ritgerðum eða prófum :D     …….. 
  • Stelpukvöld á laugardaginn heima hjá Hjördísi og mig hlakkar ekkert lítið til :D  Vona bara að sem flestar mæta og allar verða í góðu skapi.  Kvöldið getur ekki klikkað ef allir eru í góðu skapi og hressar og kátar :D Vantar reyndar Írisi en hún er víst að fara út á lífið í Noregi þannig hún verður með okkur í anda ;)  Mér finnst vera svo langt síðan ég hef farið í partý með vinum mínum, reyndar verða engir strákar þarna þannig það eru bara vinkonurnar en strákarnir mega koma næst þegar við höldum party ;)  Mér finnst geðveikt langt síðan ég hef séð suma vini mína eins og til dæmis Dodda,  hann er náttúrlega geðveikt busy sem ég skil mjög vel en ég held án gríns að það sé að nálgast ár síðan ég sá hann síðast sem er frekar sorglegt.  Mætti honum reyndar um daginn, hann keyrði framhjá mér og ég brosti voða sætt til hans en hann tók ekki eftir mér. Fólk á jeppum tekur ekki eftir fólki á yaris ha ha ha ha ha ha                                                                                                                                                                                   …………….
  •  Er einhver orðin þreytt/ur af þessum kulda ???  ég er alla vegana orðin frekar þreytt af honum og er farin að þrá sumarið. Vona að sumarið verði eins gott og í fyrra.  Ég er samt alveg að fýla það hvað það er orðið bjart úti, það er snilld.  Þegar ég mæti í leikfimi klukkan 6 á morgnana þá er byrjað að birta og miklu auðveldara að vakna :D    …………. 
  •   Ég er farin að þrá að komast til útlanda,  langar svo að komast aðeins í burtu… hver kemur með ? Ætla að enda þessu færslu á nokkrum myndum  

     irisogeg.jpg    íris og ég

 

 

tinnaogeg.jpg

ég og Tinna, tekið á seinasta stelpukvöldi sem var fyrir nokkrum árum

 

girlies.jpg

my girlies !!!

 

erlaogeg.jpg

Erla Perla

 

heidgudhareg.jpg

good times

 

astaogeg.jpg

Ásta og ég í London 2006

 

hildurogeg.jpg

Hildur og ég í skírninni hjá Þorgils eða Birni Val….. man ekki hvorri

 

skottur.jpg

Guðrún að taka myndir :)

 

þarf að vera duglegri að taka myndir……….. vantar nýrri myndir ;)  

 

Njótið helgarinnar  ;D 

7 svör to “langar svo….”

  1. Harpa segir:

    Ég er sko farin að þrá sól og sumar!! Eins gott að sumarið verður gott, eigum það svo skilið eftir þennan harða og ljóta vetur (sem ætlar aldrei að enda).
    Ég skal sko koma með þér til hennar Írisar í sumar.

  2. Íris segir:

    Æjjjj sorry… ég var ekki viss hvort ég ætti að láta þig vita :)

    En þú kemur ekki núna þá verður þú að koma í sumar :) Og Harpa líka og bara allar þær skottur sem vilja og geta :)

    Ég er búin að athuga verð og það fer ekki yfir 30.000 kallinn, og svo er frí gisting :)

    En það væri gaman að koma til mín í sumar, getum við spókað okkur um í góða veðrinu og hitanum :)

    En endilega tjékka á þessu stelpur :)

  3. Heiða segir:

    Hæ hæ :)

    Ég hélt þú myndir kannski ekki vilja fá okkur í sumar útaf óléttunni og svona ;) Frábært að þú vilt fá okkur, hehe ;)
    Er sko meira en til í að koma :) Það yrði bara æði :)

    Sjáumst annars á laugardaginn Fjóla :) Íris þú verður með okkur í anda!

  4. Guðrún segir:

    ég er til í noreg í sumar…. count me in… :)

  5. Tinna segir:

    Guð minn góður! Ég vildi að þið mynduð hætta að planta þessari mynd út um allt þar sem ég virðist vera að gera þarfir mínar…

  6. Fjola segir:

    he he he sorry tinna, but you know we love you :*

  7. Árni V. segir:

    Hæ hæ … það er snilld að sjá myndir af ykkur þar sem ég hef varla séð ykkur frá því í 10. bekk og það er ennþá skemmtilegra að sjá hvað þið hafið lítið breyst í andlitinu, maður bara acctually þekkir ykkur =)

    En ég varð bara að koma einhverju til skila, fékk bara geðveika löngun til að tékka á Garðaskóla liðinu og ákvað að skila kveðju til ykkar. Þið voruð snillingar þá, og eruð það enn.

    Til hamingju með börnin allar/öll.

    Kv. Árni V. – Garðaskóla útskr. 1996

Skildu eftir svar