- Íris var svo skemmtileg að freista mín til að koma til sín helgina 11 – 13 apríl og mig langar svo…. farið hjá icelandair er á um 40000 og ég er ekki alveg að tíma því fyrir eina helgi. …….
- Páskarnir búnir og þeir voru rólegir. Skrapp í sveitina og var þar í eina nótt, alltaf fínt að komast í sveitina en getur verið þröngt á þingi þegar allir koma en það sleppur
Svo eru prófin að byrja og ég er búin 13 maí og ég get ekki beðið, verður fínt að vera bara að vinna og þurfa ekki að hafa áhyggjur af einhverjum ritgerðum eða prófum
…….. - Stelpukvöld á laugardaginn heima hjá Hjördísi og mig hlakkar ekkert lítið til
Vona bara að sem flestar mæta og allar verða í góðu skapi. Kvöldið getur ekki klikkað ef allir eru í góðu skapi og hressar og kátar
Vantar reyndar Írisi en hún er víst að fara út á lífið í Noregi þannig hún verður með okkur í anda
Mér finnst vera svo langt síðan ég hef farið í partý með vinum mínum, reyndar verða engir strákar þarna þannig það eru bara vinkonurnar en strákarnir mega koma næst þegar við höldum party
Mér finnst geðveikt langt síðan ég hef séð suma vini mína eins og til dæmis Dodda, hann er náttúrlega geðveikt busy sem ég skil mjög vel en ég held án gríns að það sé að nálgast ár síðan ég sá hann síðast sem er frekar sorglegt. Mætti honum reyndar um daginn, hann keyrði framhjá mér og ég brosti voða sætt til hans en hann tók ekki eftir mér. Fólk á jeppum tekur ekki eftir fólki á yaris ha ha ha ha ha ha ……………. - Er einhver orðin þreytt/ur af þessum kulda ??? ég er alla vegana orðin frekar þreytt af honum og er farin að þrá sumarið. Vona að sumarið verði eins gott og í fyrra. Ég er samt alveg að fýla það hvað það er orðið bjart úti, það er snilld. Þegar ég mæti í leikfimi klukkan 6 á morgnana þá er byrjað að birta og miklu auðveldara að vakna
…………. - Ég er farin að þrá að komast til útlanda, langar svo að komast aðeins í burtu… hver kemur með ? Ætla að enda þessu færslu á nokkrum myndum
íris og ég
ég og Tinna, tekið á seinasta stelpukvöldi sem var fyrir nokkrum árum
my girlies !!!
Erla Perla
good times
Ásta og ég í London 2006
Hildur og ég í skírninni hjá Þorgils eða Birni Val….. man ekki hvorri
Guðrún að taka myndir
þarf að vera duglegri að taka myndir……….. vantar nýrri myndir
Njótið helgarinnar ;D





Fjóla skrifaði