Ég er sem sagt búin að vera passa hús bróður míns (og kött) í 2 vikur, en hann býr í einbýlishúsi á völlunum. Aðfaranótt miðvikudags fór ég frekar seint að sofa, var búin að vera baka fyrir Alexöndru en hún átti afmæli á miðvikudeginum og kæmi þá heim frá Tenerife. En alla vegana ég leggst upp í rúm og fer að lesa og svo um svona hálf 2 var ég alveg að sofna en heyri bíl keyra inn götuna, sem mér fannst frekar skrýtið þar sem þetta er mjög hljóðlát gata. Svo heyri ég bara skellt hurðum og hlaup, næst er barið mjög fast á hurðina hjá mér og ég panika !!! svo heyri ég að það er labbað um í mölinni. Ég tek það fram að ég er með alveg ágætt ýmundunarafl, þó ég horfði nú bara á rómantískar bíómyndir og gamanmyndir þá fór ég nú strax að hugsa um einhverja hryllingsmynd eða eitthvað !!! Ég fer upp úr rúminu, kveiki ljós og er að deyja úr hræðslu, ég skelf eins og hrísla. Ég hringi í 112 og þeir segjast koma en svo heyri ég hlátur sem ég kannast frekar mikið við. Heyri hann kannski svona á hverjum degi í VINNUNNI !!!! opna hurðina og auðvita eru þetta Axel og Hemmi vinnufélagar mínir að HRÆÐA ÚR MÉR LÍFTÓRUNA !!! eru þið að grínast hvað ég hefði geta lamið þá !!! Þeir voru þarna ásamt 2 vinum sínum og grenjuðu úr hlátri. Ég hringdi í 112 aftur og bað þá um að koma ekki þar sem það var bara verið að stríða mér, löggan hló og sagði mér að ég yrði nú að hefna mín á þeim (þetta er allavegana geymt en ekki gleymt) !! Ég skalf svo mikið að þið trúið því ekki, ég hef aldrei verið eins hrædd á ævinni, var á mörkunum að fara að grenja. Svo þegar þeir fóru þá ætlaði ég aldrei að ná að sofna aftur…….. Þeir héldu víst áfram og fundu sér annað fórnarlamb sem var víst alveg jafn hræddur og ég og hringdi einnig í 112, hvernig endaði sú saga ???
Fjóla skrifaði