Snjór og aftur snjór !!

Ok ég er virkilega farin að þrá vorið og sumarið, er orðin frekar þreytt á þessum snjó og kulda !!    Ég skil fólk mjög vel fyrir að skella sér til sólarlanda um þetta leiti til að komast í burt frá þessu kuldaskeri !!!   Þetta land getur nú oft verið yndislegt en núna er ég ekkert mjög spennt fyrir því.   Væri til í að komast aðeins í burtu þó það væri ekki bara eina helgi til London ?  vill ekki einhver bjóða mér ??? he he he 

  • Samfés er næstu helgi og þá verður nóg að gera í vinnunni, hlakka til þegar Samfés er búið og þá eru allir stórviðburðir búnir í bili :)   Svo er ekki nema 3 vikur í páskana og þá verður maður með nefið oní lærdómsbókunum en reynir að kíkja í sveitina líka :)  Alltaf svo gott að vera í sveitinni :D  

 Bara vika þangað til ég þarf að flytja á vellina í 2 vikur, það verður mjög fínt, stutt í vinnu og gott næði til að læra enda svo stutt í prófin :)     Var einmitt að spá í næstu haust og taka þá færri áfanga og vinna meira :)  Manni vantar alltaf pening, ekki satt ?

 

 njótið snjósins !! 


3 svör to “Snjór og aftur snjór !!”

  1. Hildur segir:

    Hae darling :o )
    Kikt thu nuna a myspace inboxid thitt !!

    knus og kossar
    Hildur

  2. Erla Baunabumba segir:

    Oj ég er ekki að fýla þennan snjó! Nenni ekki að keyra á litla ljóta (tussu ógeð ömurlega og glataða) polo-num mínum í vax:( Finnst að ég eigi að fá einkadriver þegar færðin er svona:D Viltu taka það að þér? híhí En ég er farin að sakna þín vinan, er ekki málið að farað hittast?? og kanski fyrir 5.apríl?;)

  3. Hildur segir:

    Hae hae
    Kiktu aftur a myspace inboxid thitt :o )

    knus og kossar
    H.

Skildu eftir svar