þreyta !!

febrúar 25, 2008

já ég er þreytt,  held að ég sé ennþá hálf ónýt eftir þetta LAN um helgina.  En það gekk sem betur fer vel fyrir sig enda svo miklir englar í þessum skóla ;)   Ég náði reyndar ekki miklum svef á laugardeginum og var það því bara sæng, rúmið og sjónvarpið á laugardagskveldinu, frekar ljúft.     Í gær skruppum ég, Harpa, Heiða og Tinna út að borða á Vegamót og kítkum svo í bíó á 27 dresses.  Hún var fín, maður vissi auðvita hvað ætti eftir að gerast alla myndina en svona myndir eru alveg nauðsynlegar inn á milli.  Reyndar horfi ég aðalega á svona myndir ha ha ha ha ;)     En kvöldið var mjög fínt, gaman að hafa svona stelpukvöld og gera eitthvað saman ;)  

Óskarinn var afhentur í gær og ég ætlaði að reyna að sjá eitthvað af honum en steinsofnaði eftir að það var búið að afhenda óskarinn fyrir besta leikara í aukahlutverki.  Ég gat alveg hlegið af John Stewart, hann gerir grín af öllu og öllum.

Vitiði hvað fer rosalega í taugarnar á mér….. þegar fólk fer í fýlu útaf engu eða þegar  það getur ekki sagt hvað er að og líka þegar það lætur eins og það sé betra en allir aðrir. Ég verð mest pirruð þegar fólk lætur þannig. Af hverjur getur fólk ekki bara tjáð sig á almennilegan og kurteisan hátt ????  Ég er ekki að segja að ég sé eitthvað perfect og er alltaf í góðu skapi og aldrei fúl eða pirruð en ég reyni að láta ekki minn pirring eða fýlu bitna á öðrum.  Það eru bara bara sumir sem halda að heimurinn snúist í kringum sig og það fer mjög í taugarnar á mér.    ok…. varð aðeins að koma þessu frá mér ;)   líður miklu betur núna :D

jæja best að halda áfram að vinna, full skrifstofan af unglingum sem eru að spila :)