It´s a new world !!

Erla vinkona breytti sinni síðu og mér leist svo vel á hana að ég ákvað að herma ;)   þannig ég held að ég haldi mig bara hér í framtíðinni.

Grunnskólahátíðinn var í gær og  var þvílík stemming á liðinu, ég fékk það skemmtilega verkefni að sjá um sjoppuna og var ég alveg búin þegar ég kom heim.  Lét samt renna í bað og fór í heitt bað og spilaði þægilega tónlist og fór svo upp í rúm og steinsofnaði :)      

Það er ekki mikið að gerast þessa dagana, lífið snýst um að vinna og skólann. Svo er ég í starfskynninga áfanga í skólanum þar sem ég þarf að skila af mér ákveðið mörgum tímum, þannig maður reynir að pússla þessu öllu saman.  Ég fór  nú í bíó seinustu helgi að P.S I love you, mér auðvita tóskt að gráta yfir henni ;)   Myndin var fín en ég var búin að lesa bókina og varð fyrir pínu vonbrigðum þar sem mér fannst margt vanta sem var í bókinni.  Gerald Butler var líka mjög flottur í myndinni þannig ég ætla ekkert vera að kvarta ;)    En það sem ég get kvartað yfir er að loftræstingskerfið var bilað og það var steik þarna inni og svo fyrir aftan okkur voru einhverjar 18 ára gellur sem voru að gera alla brjálaða í bíó.  Þær kjöftuðu alla myndina voru með þvílík læti og voru að spjalla í símann.  Ég reyndar snéri mér við eitt skitptið þegar ein gellan svaraði símanum og benti henni á að hún væri í bíó.   Ég er 100% viss um að ég hafi aldrei látið svona í bíó þegar ég var 18 ára……. það sem var fyndnast við þetta þegar myndin var búin þá heyrðist í þeim, það er greinilegt að fólk kann ekki að skemmta sér !!! ÞÚ ERT Í BÍÓ ekki á SKEMMTISTAÐ !!!!!!   reyndar komast þær ekki inn á skemmtistaðina, greyin !

Gerry Butler Bara flottur ;)

Hildur vinkona er farin til LA í mánuð og það er smá öfund þar, hefði ekkert á móti því að vera þar nuna.  Maður hefði kannski bara átt að smygla sér í töskunna hennar og fara með.  Yfirvikt ???? nei er það………    væri alveg til í að fara í Victoria Secret og versla he he    

 Matarboð annaðkvöld hjá Erlu Perlu og hlakka ég til. Verður örugglega eitthvða mjög gott á boðstólnum og svo er félagsskapurinn auðvita frábær ;)    

Njótið helgarinnar :)

13 svör to “It´s a new world !!”

  1. Erla Baunabumba segir:

    Ohhh þín síða er miklu flottari en mín!!!!!!!!!!!!!!!!! *öfund* Núna er ég sko brjáluð!;) híhí hlakka til að sjá þig á morgun og vonandi verður maturinn ekki brenndur…já eða hrár;)

  2. Fjóla segir:

    Erla mín, mín er ekkert flottari þær eru jafnflottar ;)

  3. Hildur Yr segir:

    hahahahahaha thad hefdi verid ogedslega fyndid ef thu hefdir falid thig i ferdatoskunni minni!!! hun er nefninlega tynd !!!
    eg kom til LA nuna i morgun. Missti af velinni i gaerkvoldi og thurfti ad fara i morgun. Og thegar eg lenti kom bara onnur ferdataskan min… oh well… thad kemur i ljos…. bommer samt….
    anyways…. knus til allra a klakanum!!
    Love you

  4. Thelma segir:

    Hæ skvís… takk fyrir í gær…
    þú grenjar yfir ÖLLUM myndum… :)

    mín síða er komin í lag!

  5. Heiða segir:

    Hæ Fjóla :)
    Nýja síðan þín er rosa flott :)
    Sjáumst vonandi soon
    Heiða

  6. Erla Baunabumba segir:

    Jæja Fjóla mín, það þýðir ekkert að búa til svona flotta síðu og nota hana svo ekki neitt;) Bloggedddí blogg:D

  7. negroski segir:

    Lìkur sækir lìkan heim.

    … e Trilli, Trilli, Trilli… prosit!
    Un saluto notturno dall’Italia.

    ekkert nafn ?? eitthvað að fela ??

  8. newyorker segir:

    ahahha ciao negroski
    hi all ;)

  9. Thelma segir:

    hver er þessi newyorker? wrrrrrarrrr!!! á fjóla secret admirer?

  10. Richard Gekko segir:

    Ehi, ma guarda che qui in in italia ne trovi di molto più belli di quello della foto…. anzi, diciamo che quello è come uno dei nostri più brutti, vabbè giuliano ferrara non fa testo…

    Passo solo per un salutino veloce… “complimenti par el telaro”

    Italy loves Iceland

  11. Thelma segir:

    ertu ekki að djóka??! hvaða gaurar eru þetta fjóla?! er eitthvað sem þú ert ekki að segja okkur?

  12. A_G segir:

    lo dice pure mio cuggino.

    Italy loves Iceland

  13. Erla Baunabumba segir:

    Ég las á bloggi hjá annari vinkonu minni að það er víst einhver keppni hjá ítölunum með wordpress að kommenta hjá íslendingum:)

Skildu eftir svar